Um Norræna loftslagsdaginn
Norræni loftslagsdagurinn 2009 er hluti af undirbúningi undir loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna (COP15), sem haldin verður í Kaupmannahöfn.
Markmiðið með loftslagsdeginum er að auka þekkingu ungs fólks á Norðurlöndunum á loftslags- og umhverfismálum. Annað markmið er að setja á laggirnar sameiginlega vefgátt um kennslu í loftslagsmálum á Norðurlöndunum.
Á þessari vefsíðu klimanorden.org verður hægt að kynna sér, í gegnum netið, kennsluefni frá öllum Norðurlöndunum. Hér verða einnig birtar upplýsingar um norræna viðburði, þemasíður og verkefni.
Þátttaka í Norræna loftslagsdeginum er öllum opin, einungis þarf að skrá þátttöku á klimanorden.org. Norræni loftslagsdagurinn verður haldinn þann 11. nóvember, en vinna við verkefni og viðburði verður í gangi bæði fyrir og eftir þann dag.
Gerist áskrifendur að fréttabréfi um loftslagsdaginn. Við látum síðan vita, hvenær hægt verður að skrá þátttöku í deginum.
Með von um skemmtilegan og áhugaverðan dag!
Með bestu kveðju
Norræna ráðherranefndin og norrænu menntamálaráðherrarnir

About…
Newsletter
Sitemap
Technical
Write to
RSS
Search

