Takið þátt í því sem ef til vill verður stærsta farsíma tilraun í heimi, þann 11. nóvember 2009
Takið þátt í því sem ef til vill verður stærsta farsíma tilraun í heimi, þann 11. nóvember 2009
Part 0

Norræna loftslagsverkefnið - heimsins stærsta sms-tilraun
Til þess að stöðva loftslagsbreytingarnar verður manfólkið að vita heilmikið um loftslagsmál og vera jafnframt skapandi, til þess að finna nýjar lausnir.
Taktu frá þrjá klukkutíma miðvikudaginn 11. nóvember til að taka þátt í keppninni Norræna loftslagsverkefnið. Keppnin verður haldin á sama tíma í öllum norrænu ríkjunum sem liður í Norræna loftslagsdeginum sem Norræna ráðherranefndin heldur.
Keppnin er mögulega stærsta sms-tilraun sem gerð hefur verið og sigurvegarinn mun koma úr röðum þeirra þátttakenda sem bæði eru faglega hæfir og sýna hæfni til nýsköpunar.
Þátttakendur eiga að vera í 7. – 10. bekk grunnskólans. 3-4 manna lið sem nota einn farsíma mega taka þátt.
Keppnin felst í að leysa tvö verkefni samtímis, Loftslagsverkefnið og Heita farsímann:
- Loftslagsverkefnið
Í þessum hluta keppninnar reynir á hæfni nemendanna til að finna nýjar lausnir á loftslagsmálum.
Nemendurnir fá sent verkefni sem þeir eiga að leysa á þremur tímum í gegnum símann.
Loftslagsverkefnið fer fram í skólanum eða nærumhverfinu og notast verður við alla tækni í símanum (hljóðupptaka, mynd,kvikmynd). - Heiti farsíminn
15 spurningar um loftslagsmál, sem svarað er með því að velja einn af tveimur valmöguleikum.
Spurningarnar koma sem sms og er einnig svarað á þann hátt. Verkefnið er metið eftir fjölda réttra svara.
Vinningshafar og verðlaun
Sá hópur fer með sigur af hólmi sem stendur sig best í báðum hlutum kepninnar þann 11. nóvember; Loftslagsferðinni og Heita símanum.
Auk þess sem valinn verður norrænn sigurvegari, verða veitt verðlaun í hverju þátttökulandi til þess hóps sem kemur með áhugaverðustu lausnina í Loftslagsferðinni (sem mun birtast á loftslagskortinu).
Verðlaunin verða kynnt hér á vefsíðunni fyrir 11. nóvember.
Tilkynnt verður um sigurvegara hér á vefsíðunni í lok nóvember.
Skráðu þig hér!
Skrá þarf þátttöku skóla í farsímakeppninni fyrir 11. nóvember.
Smelltu hér, til að skrá þig í farsímakeppnina.
Fact sheet and FAQ
Click here to access the fact sheet and the FAQ for the mobile event on october 11th. (Requires login)
Leiðbeiningar fyrir kennara

Sækja leiðbeiningar fyrir kennara um farsímakeppnina á Norræna loftslagsdeginum.
Stórir vinningar!
Telenor, er stuðningsaðili Norræna loftslagsdagsins
- Fyrstu verðlaun (til hóps) eru 10.000 danskar krónur
- Fyrstu verðlaun í hverju landi fyrir sig (til hóps) eru 5.000 danskar krónur
Smáskilaboð (SMS) samkvæmt gjaldskrá
Kostnaður við að senda smáskilaboð (SMS) í keppninni er samkvæmt gjaldskrá í hverju landi. Ekkert aukagjald er tekið fyrir SMSskilaboð í keppninni.
Nemendur greiða venjubundið gjald fyrir að senda SMS-skilaboð samkvæmt gjaldskrá þeirra fjarskiptafyrirtækis. Ef einn farsími er notaður af keppnishópi og gjald fyrir smáskilaboð er jafnvirði 11 kr. kostar 155 kr. fyrir hvern hóp að taka þátt í keppninni. Það þýðir að kostnaður á mann er í hæsta lagi rúmar 50 kr. fyrir þau smáskilaboð sem send eru í keppninni.
Sumir eru af grundvallarástæðum andvígir því að nemendur greiði fyrir kennsluefni. Til að koma í veg fyrir misskilning er því góð hugmynd að upplýsa nemendur og foreldra um að það kostar að taka þátt í keppninni.

About…
Newsletter
Sitemap
Technical
Write to
RSS
Search


