Komdu skólanum þínum á norræna loftslagskortið
FYRIR ALLA!
Haustið 2009 mun Norræna ráðherranefndin leggja beina sjónum að kennslu á Norðurlöndunum um loftslagsmál. Allir grunn- og framhaldsskólar á Norðurlöndunum geta tekið þátt í Norræna loftslagsdeginum með því sýna hvernig þeir taka, á virkan þátt,ábyrgð á loftslagsmálum.
Hvernig hafa nemendur þínir unnið með loftslagsmál?
Það getið þið sýnt með því að skrá verkefnin ykkar á stórt gagnvirkt kort af Norðurlöndunum. Þar verður einnig hægt að skoða það sem starfssystkin þín hafa gert í næsta bæ eða jafnvel í norrænum vinabæ.
Nýtið ímynduraflið
Til að mynda er hægt að láta nemendur gera litla kvikmynd, þannig munu norrænir grannar eiga auðveldara með að skilja verkefnið ykkar.
Einnig væri hægt að láta nemendur skrifa fréttir um áhrif loftslagsbreytinga á ykkar svæði.
Verkefnin geta verið eins fjölbreytt og við erum mörg, en við hvetjum til þess að deila góðum hugmyndum með norrænum starfssystkinum.
Part 0
Vinningshafar og verðlaun
Allir þátttakendur taka þátt í happdrætti sem dregið er í einu sinni í mánuði, vinningurinn er gjafakort að jafnvirði 500 dönskum krónum.
Mánaðarlega verða dregnir út fimm vinningshafar. Öll verkefni frá september, október og nóvember eru með í happadrættinu.
Vinningshafar verða kynntir á þessari vefsíðu.
Komdu skólanum þínum á norræna loftslagskortið
Skrifaðu frétt um ástand loftslagsins og deildu með Norðurlöndunum.
Takið þátt í því sem gæti verið heimsins stærsti farsíma-viðburður
Verið með í því sem ef til vill verður heimsins stærsta farsíma-tilraun þann 11. nóvember 2009.
Sérstaklega fyrir 7. – 10. bekk.

About…
Newsletter
Sitemap
Technical
Write to
RSS
Search

