Spring til sidens indholdSpring til sidens menuSpring til sidens bund• Top
• Indhold

Gerist samstarfsaðilar Norræna loftslagsdagsins 2009

 

Samstarfsaðilar

Norrænu menntamálaráðherrarnir og Norræna ráðherranefndin bjóða völdum aðilum að gerast samstarfsaðilar Norræna loftslagsdagsins 2009. Loftslagsdagurinn verður haldinn þann 11. nóvember og er liður í undirbúningi fyrir Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn í desember.

 

Markmið loftslagsdagsins er:

  • að efla norrænt skólasamstarf um loftslagsmál
  • að stuðla að þátttöku norræna nemenda í umræðu um loftslagsmál
  • að stofna umræðuvettvanginn klimanorden.org til að miðla upplýsingum um samnorrænar aðgerðir til að stemma stigu við gróðurhúsaáhrifum
  • styðja kennara í skólastarfi sem tengist loftslagsmálum.

 

Aðalmarkhópur loftslagsdagsins er nemendur, lærlingar, kennarar og stjórnendur og kennarar
í grunn- og framhaldsskólum á Norðurlöndum.

Við bjóðum norrænum stofnunum og félögum, rannsóknastofnunum, háskólum og lýðháskólum,
aðilum vinnumarkaðarins, kennara- og nemendasamtökum, söfnum og þekkingarsetrum og
öðrum áhugasömum að gerast samstarfsaðilar.

Gert er ráð fyrir að samtarfsaðilar taki virkan þátt í verkefnum og/eða viðburðum sem tengja
má markmiði Norræns loftslagsdagsins um að efla vitund og þekkingu á loftslagsvandanum, og
stuðla að því að nemendur, kennarar og fræðsluaðilar taki virkan þátt í umræðu um leiðir til að
stemma stigu við honum.

Samstarfsaðilar fá tækifæri til að kynna sig með því að nota Norrænan loftslagsdag sem umgjörð
um viðburði og verkefni. Samstarfsaðilarnir verða kynntir á heimasíðu Norræna loftslagsdagsins.
Á klimanorden.org verður m.a. yfirlit yfir loftslagsverkefni á Norðurlöndum, þemasíður, blogg,
samkeppnir, gagnvirkt námsefni og sms-loftslagskeppni.

Loftslagsdagurinn verður haldinn þann 11. nóvember, en verkefnavinna og viðburðir geta átt sér
stað bæði fyrir og eftir þann tíma.

Samstarfsaðilar fá aðgang að kennimerki og upplýsingaefni um Norræna loftslagsdaginn og
mega nota það á heimasíðum sínum.


 

Ef þú/þið hafið áhuga á að gerast samstarfsaðili eða óskið nánari upplýsinga, smellið þá á www.
klimanorden.org.

 

 

Með bestu kveðju
Norræna ráðherranefndin og Menntamálaráðherra

 

© Google 

Part 0

Samstarfsverkefni

 Setja samstarfsverkefni inn á loftslagslandakortið.

Subscribe to updates from Nordic Climate Day



Nordsik Klimadag 11. november 2009 …