Spring til sidens indholdSpring til sidens menuSpring til sidens bund• Top
• Indhold

Samstarf, verkefni og ráðstefnur

 

Samstarf, verkefni og ráðstefnur

eTwinning 

eTwinning auðveldar þér að stofna til samstarfsverkefnis og finna samstarfsaðila. eTwinning er hluti af  Comenius sem er hluti af Menntaáætlun ESB.

 

Comenius 

Comenius-áætlunin styrkir mannaskipti og fjölþjóðleg samstarfsverkefni evrópskra aðila á leikskóla-, grunnskóla- og framhaldsskólastigi.

 

Nordplus 

Er menntaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar. Nordplus er rammaáætlun með fjórum undiráætlunum sem beinist að öllum stigum menntunar – frá grunnskóla til æðri menntunar.

 

ICE2009 

ICE09 stendur fyrir Inspiring Climate Education. Ráðstefnan verður haldin í Kaupmannahöfn áður en loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna (COP15) hefst í desember. Á ráðstefnunni verður lögð áhersla á að miðla efni til að efla hæfni þátttakenda til kennslu um loftslagsbreytingar.

 

CO2NNECT 

CO2nnect er hannað til þess að styðja við nám sem veitir nemendum getu, færni, afstöðu og vitund og einnig þekkingu og skilning á þessum málefnum.

 

SUPPORT 

Markmið SUPPORT - Partnership and Participation for a Sustainable Tomorrow- er að kynna og auka gæði menntunar um sjálfbæra þróun með því að tengja skóla, rannsóknastofnanir og samfélög í gegnum tengslanet á Netinu.

 

ARENA Norden 

Í aðragandanun að fundi samtaka Norrænu félaganna um loftlagsmál í Kaupmannahöfn 2009 munu Norræna félagið í Svíþjóð, Studieförbundet Vuxenskolan og Global Umaning standa fyrir herferð sem miðar að því að auka þekkingu á loftslagsbreytingum meðal norðurlandabúa og jafnframt auka þekkingu á möguleikum þessara þjóða til þess að taka virkan þátt í nýjum alþjóðasamningi um loftslagsmál. Á heimasíðunni www.arenanorden.org má finna norrænar loftslagsfréttir, námsefni fyrir hópa og fleira.

 

Subscribe to updates from Nordic Climate Day



Nordisk Klimadag