Spring til sidens indholdSpring til sidens menuSpring til sidens bund• Top
• Indhold

Stafrænt efni á Norðurlöndunum

Á vefsíðum Norðurlandanna er mikið af áhugaverðu efni á netinu sem nýta má við kennslu eða í norrænu skólasamstarfi.

Stafrænt kennsluefni á Norðurlöndunum

Miljolare.no
Er verkfæri til kennslu í sjálfbærri þróun. Á vefsíðunni eru dæmi um verkefni sem nemendur geta unnið í nærumhverfinu. Niðurstöður rannsóknanna verða settar í sameiginlegan gagngrunn þar sem hægt verður að bera saman eigin rannsóknir og annarra.
http://miljolare.no 

lektion.se
(loftslagsleit)
Lektion.se kennsluefni á netinu, samið af kennurum fyrir kennara. Grunnurinn er hugmyndabanki, gagnagrunnur þar sem þú getur á einfaldan hátt sent inn, leitað að og náð í kennsluefni.
http://www.lektion.se/lektioner/sokresultat.php?subjects=&yearMin=1&yearMax=9&search=klima&level=0&action=search 

Klimaundervisning.dk
(danska)
Á klimaundervisning.dk (loftslagskennslunni) má leita í gagnagrunni sem inniheldur kennsluefni um loftslagsmál fyrir grunnskóla, framhaldsskóla og tækniskóla og grunnnám í háskóla. Efnið er frá stofnunum, bókaútgáfum, söfnum og fleirum.
http://www.klimaundervisning.dk/ 

EdReNe – Educational Repositories Network
EdReNe er evrópskt tengslanet, sem dreifir upplýsingum um efni sem nálgast má á netinu. Frá vefsíðu EdReNe er hægt að nálgast mikið af norrænu og evrópsku efni er á netinu.
http://edrene.org 

EMU.dk – Danski kennsluvefurinn (danska)
Meginmarkmið EMU er að þróa og bæta kennslu með því að veita skólum sameiginlegan aðgang að helsta efni sem til er á netinu. EMU skiptist í átta „heima” fyrir ólíkar menntaleiðir og auk þess í  u.þ.b. 70 vefsíður, sem allar eru merktar með bláum EMU trjádrumbi.
http://emu.dk 

Materialeplatformen.emu.dk (danska)
Efnisskráin er dönsk netskrá á vefsíðu EMU, sem auðveldar öllum aðgengi, kennurum jafnt og nemendum.
http://materialeplatform.emu.dk 

Skolenettet.no (norska)
Skólanetið heyrir undir norska menntamálaráðuneytið. Vefsíður sem ætlaðar eru fyrir kennara, nemendur, foreldra og aðra sem áhuga hafa á skóla og námi. Á skólanetinu eru kennsluáætlanir fyrir þekkingareflinguna, sem tengjast efni á netinu. Hér má skoða tillögur að krækjum á efni sem tengist því að ná markmiðum og grunnfærni.
http://www.skolenettet.no/Default.aspx?epslanguage=NO 

Utdanning.no (norska)
Menntun er sameiginleg vefgátt, sem veitir aðgengi að upplýsingum um menntun, starfsframa, kennslu og menntakerfið í heild.
http://utdanning.no/ 

EDU.fi – opettajan verkkopalvelu (finnska)
EDU er rekið af finnska menntamálaráðuneytinu og er aðallega ætlað kennurum. Á EDU er fjöldi áhugaverðra vefsíða um notkun IKT við kennslu.
http://www.edu.fi 

Vetamix
(sænska)
Vetamix er vefsíða fyrir kennara. Á síðunni er mikið af efni, sérstaklega hljóð og myndefni úr safni ríkisútvarpsins YLE.  Þar eru einnig myndir sem nýta má eftir þörfum við kennslu.
http://vetamix.yle.fi/ 

Drekktu vatn! (sænska)
Verkefnið Drekktu vatn miðar að því að ná til krakka í fjórum efstu bekkjum grunnskóla. Á vefsíðunni www.drickkranvatten.se er að finna ýmsar staðreyndir og hugmyndir að kennsluefni í samræmi við Aðalnámskrá. Kennsluefnið má ýmist nota eitt og sér eða sem hluta af annarri þemavinnu. Verkefnið Drekktu vatn er á vegum Sydvatten AB, drykkjarvatnsframleiðanda í eigu 14 sveitarfélaga á Skáni í Svíþjóð.
www.drickkranvatten.se 

Ålands skolnät – (álenskt)
Skólanet Álandseyja er skólavefgátt fyrir allt menntasamfélagið á Álandseyjum.
http://www.skolnet.aland.fi/ 

Skolverket – IT för pedagoger (sænska)
Upplýsingatækni fyrir kennara er fyrir þá sem vilja nýta upplýsingatækni við kennslu. Þar eru allar vefkrækjur sem þörf er á, bæði frá stjórnvöldum og öðrum.
http://itforpedagoger.skolverket.se/ 

ATTAT – (Grønlandsk)
ATTAT er vefgátt grænlenska kennslunetsins. Flestir grænlenskir nemendur/stúdentar og kennarar/leiðbeinendur skrá sig í kerfið, og þaðan geta þeir átt samskipti og rætt saman í gegnum bæði í opin og lokuð kerfi.
http://www.attat.gl 

KT Depilin – (færeyska)
KT-depillinn tilheyrir færeyska menningarmálaráðuneytinu. KT-depillinn veitir skólakerfinu sjálfstæða upplýsingatækniþjónustu, fyrst og fremst grunnskólanum.
http://www.skulin.fo/ 

Snar – (færeyska)
Snar er menntagátt ætluð kennurum, foreldrum og ungu fólki. Þar má finna efni og krækjur á allt efni sem þörf er á við kennslu.
http://www.skulin.fo/ 

Menntagátt – (íslenska)
Menntagátt er íslensk vefgátt, sem vísar leiðina að kennsluefni á netinu og þemum fyrir allt menntakerfið.
http://Menntagatt.is 

 

Subscribe to updates from Nordic Climate Day



Nordisk Klimadag